Barnafjölskyldur á Akranesi - Samanburður á leikskólagjöldum
26.1.2011 | 20:08
Í maí á síðasta ári, rétt fyrir kosningar, skrifaði ég grein um leikskólamál hér á Skaganum og bar saman leikskólagjöld nokkurra bæjarfélaga á stór-höfuðborgarsvæðinu. Ég talaði fyrir því að gera þyrfti Akraneskaupstað samkeppnishæfan þegar kemur að þessum málum þar sem bærinn kom alls ekki nógu vel út í þessum samanburði. Þar sem ég fékk umboð til að hafa áhrif þar á finnst mér rétt að taka saman stöðuna í dag og bera saman við stöðuna sem var fyrir kosningar.
Úttekt á dvalartíma haustið 2010 sýndi að flest börn dvelja í leikskólanum frá 7,5 klst. til 9 klst. á dag. Því ákvað ég að halda mig við sama samanburð og ég gerði síðast, þ.e. 8 og 9 klst. og bera saman sömu bæjarfélög, þ.e. Akranes saman við Reykjavík, Mosfellsbæ, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð, Árborg og Reykjanesbæ.
Eins og þetta leit út í fyrri úttekt þá voru foreldrar á Akranesi að greiða hæsta verðið fyrir 9 tíma vistun barna í samanburði við áðurnefnd bæjarfélög og munaði 45% á verði á Akranesi og lægsta verði sem greitt var fyrir barn í 9 tíma vistun. Í dag munar ekki nema 8% á Akranesi og lægsta verði og eru foreldrar að greiða þriðja lægsta verð fyrir 9 tíma vistun eins barns á leikskólum bæjarins. Því er að þakka að ný bæjarstjórn ákvað í sumar að fella niður sérstakt álagsgjald á þá sem þurfa meira en 8 tíma vistun fyrir barn sitt sem eru í raun flestir sem stunda 8 tíma vinnudag og eru lengur en 5 mínúturað koma sér til og frá vinnu.
Þegar kemur að 8 tíma vistun greiddu foreldrar á Akranesi 37% hærra verð fyrir eitt barn, en þar sem gjaldið var lægst. Í dag greiða foreldrar á Akranesi aðeins um 8% hærra verð en það lægsta og greiða foreldrar hér þriðja lægsta verðið í samanburði við þessi bæjarfélög.
Eins og sjá má á þessum tölum þá er stefnan sú að gera bæinn okkar að eins fjölskylduvænann og mögulegt er og liður í því er að styðja við fjölskyldur bæjarins eins vel og hægt er með því m.a. að reka góða leikskóla á samkeppnishæfu verði. Það gerir foreldrum auðveldar fyrir að stunda vinnu sína hvort sem er á Skaganum, Grundartangasvæðinu, Reykjavík eða annarsstaðar. Þeim sem vilja kynna sér nánar þennan samanburð bendi ég á bloggsíðu mína: ingibjorgv.blog.is. þar sem ég mun setja inn töflur sem skýra þetta nánar.
Gleðilegt er að í þjónustukönnun sem gerð var í haust af Capacent Gallup, kom í ljós að íbúar Akraneskaupstaðar telja þjónustu við leik- og grunnskóla bæjarins mjög góða og er Skaginn í öðru sæti af sextán sveitarfélögum þegar kom að þjónustu leikskóla.
Á íbúaþingi sem haldið var á Skaganum í desember kom skýrt fram að fólk vill að Akranes sé fjölskylduvænn bær og lögð sé mikil áhersla á málefni hans og mun því bæjarstjórn halda áfram að gera góðan bæ betri þegar kemur að fjölskyldum á Akranesi.
Ingibjörg Valdimarsdóttir
Formaður Fjölskylduráðs
(Grein sem birtist í Skessuhorni 26.janúar 2011)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Barnafjölskyldur á Akranesi - samanburðartöflur
26.1.2011 | 19:30
Eins og ég var búin að lofa í grein sem ég skrifaði í Skessuhorn og birtist í dag, 26.janúar, þá eru hér þær töflur sem ég hafði til hliðsjónar er ég skrifaði greinina.
Miðað er við að þetta séu hjón eða fólk í sambúð. Ég tek tillit til systkinaafsláttar í öllum bæjarfélögunum í útreikningum á dvalargjaldinu. Fæðisgjald er ekki inní þessum tölum. Þessar tölur eru fengnar á heimasíðu bæjarfélaganna í vikunni 3.-9.maí sl.
Grænlituðu tölurnar eru þær sem eru lægstar í samanburðinum og þær rauðlitu þær hæstu.
| 9 tíma vistun | ||||||
| 1 barn | 2 börn | 3 börn | ||||
| 1.maí.10 | 1.jan.11 | 1.maí.10 | 1.jan.11 | 1.maí.10 | 1.jan.11 | |
| Akranes | 30.260 | 23.346 | 45.390 | 35.019 | 52.955 | 40.856 |
| Reykjavík | 24.932 | 25.708 | 24.932 | 25.708 | 24.932 | 25.708 |
| Mosfellsbær | 22.788 | 24.390 | 34.182 | 36.585 | 34.182 | 48.780 |
| Kópavogur | 20.805 | 35.699 | 35.369 | 60.688 | 40.570 | 69.613 |
| Garðabær | 28.800 | 32.000 | 43.200 | 48.000 | 50.400 | 56.000 |
| Hafnarfjörður | 21.060 | 22.050 | 35.802 | 37.485 | 44.226 | 46.305 |
| Árborg | 25.734 | 27.021 | 45.035 | 47.287 | 45.035 | 47.287 |
| Reykjanesbær | 21.600 | 21.600 | 32.400 | 36.720 | 32.400 | 47.520 |
| 8 tíma vistun | ||||||
| 1 barn | 2 börn | 3 börn | ||||
| 1.maí.10 | 1.jan.11 | 1.maí.10 | 1.jan.11 | 1.maí.10 | 1.jan.11 | |
| Akranes | 20.752 | 20.752 | 31.128 | 31.128 | 36.316 | 36.316 |
| Reykjavík | 14.432 | 21.764 | 14.432 | 21.764 | 14.432 | 21.764 |
| Mosfellsbær | 20.256 | 21.680 | 30.384 | 32.520 | 30.384 | 43.360 |
| Kópavogur | 14.805 | 25.078 | 25.169 | 42.633 | 28.870 | 48.902 |
| Garðabær | 25.600 | 25.600 | 38.400 | 38.400 | 44.800 | 44.800 |
| Hafnarfjörður | 18.720 | 19.600 | 31.824 | 33.320 | 39.312 | 41.160 |
| Árborg | 20.968 | 22.016 | 36.694 | 38.528 | 36.694 | 38.528 |
| Reykjanesbær | 19.200 | 19.200 | 28.800 | 28.800 | 28.800 | 28.800 |
Ég vona að þetta skýri betur samanburðinn.
Bloggar | Breytt 27.1.2011 kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Unga fólkið okkar
10.11.2010 | 09:20
Ég var það heppin að geta verið viðstödd Ungir-Gamlir í Bíóhöllinni á Skaganum í síðustu viku og vill hrósa þeim sem komu að þessum viðburði. Það var yndislegt að sjá hvað við eigum marga unga og efnilega listamenn í bænum og enn skemmtilegra að sjá þá spila og syngja með eldri og reyndari listamönnum. Það var gaman að sjá hvað unga fólkið er hæfileikaríkt og tilbúið að koma fram án þess að hika við það. Mér fannst þetta frábær skemmtun og bíð spennt eftir að fá að mæta þarna að ári!
Forvarnardagurinn var einnig haldinn hátíðlega í 5.skiptið í síðustu viku eða nánar tiltekið 3.nóv. Á forvarrnardaginn fara fram umræður og verkefnavinna nemenda í 9.bekkjum grunnskóla út um allt land og snýst hann um að finna hvaða leiðir eru vænlegar til árangurs til að koma í veg fyrir áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna. Að sjálfsögðu tóku grunnskólarnir á Akranesi þátt í þessu með því að hlýða á fulltrúa frá Þorpinu og Íþróttabandalaginu ásamt því að fara í hópavinnu þar sem ræddar voru samverustundir fjölskyldunnar meðal annars.
Það er áhugavert að glugga í skýrslu frá forvarnardeginum 2009 þar sem niðurstöðurnar eru skýrar hjá unglingunum. Það sem stóð uppúr þar er að því meiri tíma sem fjölskyldan eyðir saman því minni líkur eru á því að unglingar leiðist út í áfengis- og vímuefnaneyslu. Ég hvet alla til að glugga í skýrsluna það er mjög hollt fyrir allar fjölskyldur að fara yfir þessi mál. http://forvarnardagur.is/files/skyrsla_forvarnardagur_2009.pdf
Í næstu viku mun svo rödd unglinganna okkar fá að hljóma um málefni bæjarins á bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem haldinn verður í bæjarþingssalnum þriðjudaginn 16.nóv. nk. Honum verður útvarpað eins og öðrum bæjarstjórnarfundum og hefst kl.17:00. Ég hvet alla til að hlusta og heyra hvað býr í brjósti unga fólksins okkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Traust
17.10.2010 | 21:15
Ég fékk boð á ársfund Heilbrigðisstofnunnar Vesturlands (HVE) um daginn og var það heppin að geta mætt á þann fund. Ég verð að segja að ég var mjög ánægð með að hafa mætt á hann því þarna voru mörg góð, fræðandi og skemmtileg erindi.
Mér finnst frábært að sjá hversu vel er haldið utan um rekstur þessarar stofnunnar og þá sérstaklega í því árferði sem við erum að ganga í gegnum núna. Það sem mér fannst enn skemmtilegra að heyra og sjá er það hvernig tekið er á mjög krefjandi verkefnum á jákvæðan hátt og litið á þetta sem tækifæri frekar en vandamál og það er sko ekki gefist upp heldur frekar reynt að gefa í og vera tilbúin þegar samfélagið fer almennilega af stað aftur. Það er að sjálfsögðu staðreynd að allt sem fer niður hlýtur að koma upp aftur. Það er mikill kostur að geta horft á erfiðar aðstæður á jákvæðan hátt því það hlýtur að gera hlutina auðveldari viðfangs.
Ég vill minnast sérstaklega á erindi sem ég hlustaði á á þessum fundi sem Jón Björnsson, rithöfundur og sálfræðingur, hélt. Hann nefndi þetta erindi; "Rófulausi hundurinn eða forsendur traustsins". Þar fjallaði hann um hversu mikilvægt það væri að geta treyst náunganum og einnig það hvað þarf til að vera vitur en það er engan veginn það sama og að vera greindur.
Talað er um að viskan sé ein af höfuðdyggðunum sjö en þær eru: Viska, hófsemi, hugrekki, réttlæti, von, trú og kærleikur. Ég myndi telja það mjög mikilvægt að fólk temdi sér þessar dyggðir því ég tel að fólki geti látið sér líða miklu betur ef það tileinkar sér þær.
Svo er þetta með traustið, það er mjög mikilvægt að fólk læri að treysta náunganum því óvissan og vantrúin er aðeins til að brjóta mann niður til lengdar. Að sjálfsögðu þarf fólk að ávinna sér traust einnig því það er ekki gefins en um leið og fólk hefur áunnið sér traust og fólk fer að geta treyst náunganum þá fyrst geta hjól samfélagsins farið að snúast á nýjan leik.
Mikið rosalega er ég nú orðin djúp núna
..... En þetta fræðsluerindi hjá honum Jóni var alveg sérstaklega skemmtilegt og fræðandi og fékk mann aðeins til að hugsa um gildi sín og hvernig maður getur gert líf sitt betra fyrir sjálfan sig og alla í kringum sig.
En snúum okkur að öðru, nú er allt komið á fullt í Bæjarstjórn og Fjölskylduráði og mikið af spennandi og krefjandi málefnum sem tekin eru fyrir og get ég fullyrt að ég hef lært heilan helling á þessum stutta tíma sem ég hef sinnt bæjarmálunum á Skaganum.
Við í Fjölskylduráði höfum nú verið að heimsækja þær stofnanir sem heyra undir okkur og fengið að heyra hverjar áherslur þeirra eru um þessar mundir og hefur það verið mjög skemmtilegt og fræðandi. Við höfum aðeins verið að auka við þjónustuna hjá þessum stofnunum, þ.e. við jukum aftur sérkennslu í grunnskólunum og færðum hana til fyrra horfs frá því fyrir niðurskurðinn, við jöfnuðum klukkutíma gjald hjá leikskólum þannig að það er það sama hvort sem keyptar eru færri eða fleiri en 8 klst., við bættum við fjármagni til Þorpsins til að m.a. ýta undir forvarnarstarf o.fl. með unga fólkinu okkar og margt fleira.
Óhætt er að segja að manni langar að setja miklu meiri peninga í þennan málaflokk þar sem svo sannarlega peninga er þörf, en við þurfum að reka bæjarfélagið á skynsaman hátt þannig að hægt sé smám saman að létta á skuldastöðu bæjarins. Við munum halda áfram að vera í góðu sambandi við starfsfólk þessara stofnanna til að geta forgangsraðað á sem bestan hátt.
Vinna við fjárhagsáætlun næsta árs er komin á fullt skrið og gengur með ágætum. Við höfum einnig hugmyndir að því hvernig íbúar geta komið að þessari vinnu með okkur með því að leyfa okkur að heyra hvað býr þeim í brjósti varðandi það að gera Akranes að betri bæ. Nánar um það síðar.
Ég vill svo enda þetta núna með því að biðja alla að forðast svo dauðasyndirnar sjö en þær eru: Hroki, öfund, reiði, leti, ágirnd, ofát og munúðlífi 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skólamál á Akranesi
11.8.2010 | 12:27
Nú er allt að komast á fullt skrið í skólunum á Skaganum þar sem sumarið er að klárast og haustið að taka við.
Ég verð nú að segja að mér finnst viðburðarríkt sumar hafi verið full fljótt að líða, eins og oftast áður að vísu. En við taka skemmtilegir tímar, skólarnir að byrja og atvinnulífið að taka við sér eftir gott sumarfrí.
Nú er Fjölskylduráð komið á fullt skrið og mörg skemmtileg og krefjandi málefni sem þarf að taka fyrir þar og að sjálfsögðu einnig erfið málefni líka. Ég verð að segja að mér líst mjög vel á þá fulltrúa sem sitja í ráðinu þar sem auðvelt er að vinna með þeim og taka allir á málefnum ráðsins af mikilli fagmennsku.
Í takt við það sem við stefndum á að gera í vor í aðdraganda kosninganna höfum við breytt gjaldskrá leikskóla og skóladagvistar, frá og með 1.sept., þannig að almennt gjald fyrir hverja klukkustund verður það sama óháð lengd dvalartíma. Þetta þýðir það að þeir sem vinna 8 klst. vinnudag og þurfa tíma til að koma sér til og frá vinnu áður en þeir sækja börnin sín, þurfa ekki að greiða sérstakt álag á þessar umframklukkustundir eins og var. Þetta ætti að létta undir þeim sem starfa utan Akraness og einnig að gera Akranes að samkeppnishæfari bæ þegar kemur að vistunargjöldum á leikskólum.
Til viðbótar við þetta höfum við einnig ákveðið að færa sérkennsluna og kennslustunda til sveigjanlegs skólastarfs í grunnskólunum til fyrra horfs, en þessi málefni lentu undir niðurskurðarhnífnum á síðasta kjörtímabili.
Til leikskólanna höfum við ákveðið að leggja fram auka framlag til að hægt verði að halda foreldrafundi í haust og auka þannig samstarf á milli foreldra og leikskólanna.
Við viljum gera Akranes fjölskylduvænni bæ í framtíðinni og þannig að hlúa að fjölskyldum bæjarins og einnig að laða að fleiri fjölskyldur til að flytja í bæinn, þetta eru nokkur skref í þá átt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lokakaflinn á Danmerkurdvöl
29.7.2010 | 13:07
Nú á ég að vera að vinna í rannsókninni minni þar sem ég er búin að skipuleggja mig þvílíkt vel hérna síðustu daganna. Vinna í rannsókninni í dag og nota svo 3 daga í að lesa undir International Leadership prófið sem BTW felur í sér afar mikið lestrarefni....en....ég næ einhvern veginn ekki að einbeita mér nægjanlega lengi í einu að rannsókninni minni þar sem hugurinn hverfur alltaf fram um 5 daga en þá fæ ég að hitta gimsteinanna mína þrjá eftir rúma 5 vikna fjarveru frá þeim.
Ég byrjaði daginn í dag á að hjóla uppí skóla til að prenta út lokaprófið mitt í Communication Strategies for Managers en það var heimaverkefni sem við þurfum að skila. Ég er ýkt skipulögð núna þar sem skilafresturinn er til 4.ágúst en ég ákvað að klára þetta bara strax þannig að ég geti einbeitt mér að öllu hinu :-)
Nú þegar ég var búin að prenta út verkefnið og skila því ákvað ég að taka almennilega á því og hjóla til Dragör og skila lyklum þangað þannig að við tók um tveggja tíma spinning tími um götur Kaupmannahafnar í öllum veðrum...ég fékk rigningu, rok og sól á mig á leiðinni sem var bara nokkuð hressandi....og miðað við að taka 2 tíma hreyfinu í dag áætla ég að ég þurfi þá ekki að hreyfa mig mikið þar til ég fer heim
....ég þarf alla vega að taka mér pásu á hlaupunum þar sem mjóbakið virðist eitthvað vera að mótmæla þessu hlaupaprógrammi.....hvernig stendur á því að maður getur bara ekki gert það sem manni sýnist, ekki lenti ég í þessu fyrir um 10 árum síðan.... 
Nú jæja, þá fer dvöl minni í Danmörk að líða undir lok. Núna er ég búin að vera í tæpar 5 vikur hérna og verða síðustu dagarnir teknir með trukki í lærdóm og klárað það sem klára þarf. Það er alveg ótrúlegt hvað þessar tæpu 5 vikur hafa liðið hratt...
Ég er búin að vera með eindæmum heppin með þessa dvöl mína hér þar sem veðrið hefur leikið við mig allan tímann, sem kann þó að hafa valdið því að ég eyddi ekki eins miklum tíma í bækurnar og rannsóknina mína....
. Einnig komst ég að því að ég þekki og hef kynnst einstaklega góðu og skemmtilegu fólki í þessari ferð.
Ég er núna búin að búa í Frederiksberg í eina og hálfa viku og er það búið að vera alveg yndislegt og ekki skemmdi fyrir að karlinn minn kíkti í heimsókn. Íbúðin mín í Frederiksberg er rétt hjá skólanum mínum þannig að ég er búin að fá að prófa að búa í "sveitinni" og í miðborginni. Hvorug tveggja er mjög fínt og get ég ekki gert upp á milli, ekki nema þó að það er töluvert þægilegra að komast í skólann á fimm mínútum í stað klukkutíma.
Í Dragör vaknaði maður við fuglasöng og er miðbærinn þar afskaplega kósý og "hyggelig"
Það er einstaklega gaman að fá sér þar ís með flödeskum og syltetoj í litlu gamaldags ísbúðinni á horninu og rölta þaðan niðrá strönd og þaðan á bryggjuna að skoða allar flottu skúturnar.
Í Frederiksberg er líka mjög gott að vera, stutt í allt og auðvelt að nálgast ísinn og sælgætið í REMA 1000, matvöruversluninni hérna á horninu. Já svo er líka voðalega þægilegt að skokka að vatninu hérna rétt hjá til að hlaupa af sér sætindin... þ.e. þar til bakið fer að kvarta, en þá tekur maður bara betur á því á hjólinu 
Ég er búin að komast að því eftir helgardvöl mannsins míns hjá mér og nokkrar ferðir með honum á Strikið að mér leiðist svona mikill mannfjöldi og svona margar búðir....jahá mér finnst eiginlega skemmtilegra að versla í meiri rólegheitum og vera frekar á stöðum þar sem minna fólk er. Til dæmis finnst mér Kristjanía miklu skemmtilegri staður til að vera á og rölta um eða Íslandsbryggja, nú og svo finnst mér Nýhöfnin náttúrulega líka mjög skemmtileg en þó með færra fólki.
Ég velti því fyrir mér hvort manni myndi detta það til hugar að skreppa á hjólinu sínu frá Seltjarnarnesinu í búð í Grafarvoginum....hmmm.....er ekki alveg viss... hérna þá hugsar maður ekkert um það, maður fer bara á hjólið sitt og hjólar þangað sem maður þarf að fara, hvort sem það er 5 mínútna hjólreiðatúr, hálftíma eða jafnvel klukkutíma túr. Bara yndislegt !!
Ég verð að játa það að nú er mér farið að hlakka mikið til að fara heim og hitta börnin mín og knúsa þau... það er samt voðalega skrýtið að vera bráðum að fara héðan þar sem þetta er búið að vera voðalega ljúft hérna.
Það er margt mjög spennandi sem tekur við þegar heim er komið, þ.e. fyrir utan fjölskyldu og vini. Það verður mjög gaman og spennandi að takast á við þau málefni sem tengjast Fjölskylduráði og bæjarmálunum og mun ég hella mér út í það og nú að sjálfsögðu aðalvinnuna mína líka 
Alltaf nauðsynlegt að hafa nóg að gera 
Best að reyna að halda einbeitingu að rannsókninni minni þannig að ég nái að klára sem mest af henni áður en ég byrja á að lesa um leiðtoga heimsins og hver galdurinn sé að því að verða besti leiðtogi í heimi 
Svo held ég bara áfram að telja niður í hljóði........ 5 dagar.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þrjár vikur í Danmörku
17.7.2010 | 08:32
"Toget körer til Lufthavn" er setning sem ég er búin að heyra nánast á hverjum degi hérna og nú fer þetta að verða setning sem ég hætti að heyra eftir helgi þar sem ég er að fara að flytja mig um set og búa í Frederiksberg.
Það er búið að vera mjög gott að fá að prófa að búa í "sveitinni" í Dragör og hef haft það alveg einstaklega gott hérna hjá Hildi Borg og Hening og þakka ég alveg einstaklega vel fyrir mig og þessa stórkostlegu gestrisni !!
Þessar þrjár vikur sem ég hef búið hér í Danmörku hafa liðið alveg ótrúlega hratt og hef ég alltaf haft nóg að gera. Dagurinn hefur byrjað á því að hjóla til Lufthavn sem er um 30 mín. hjólreiðatúr, metro þaðan til Frederiksberg í skólann.
Það er búið að vera gaman að kynnast allra þjóða fólki í skólanum og mismunandi viðhorfi þeirra til ýmissa þátta í náminu. Ég er með fólki, frá Danmörku, Indlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Úkraínu, Rússlandi, Brasilíu og fleiri löndum.
Nú ég hef einnig gefið mér frítíma sem ég hef nýtt í að fara á ströndina, línuskauta, hjólreiðatúra og svo hef ég kíkt í Parken á tónleika með Stevie Wonder sem ég var hæstánægð með, ótrúlegt hvað karlinn hefur þetta, hann er bara flottur. Hvernig ætla það sé að halda tónleika blindur, ekki vitandi hversu margir eru að horfa og hvernig þeir bregðast við...þó fór það nú svo sem ekki á milli mála stemmningin var það góð hjá þessum 19þús. manns sem voru þarna. Þarna er mikill snillingur á ferð og gaman að hafa fengið tækifæri að sjá hann einu sinni.
Eitt sem mér finnst alveg ótrúlegt að ef maður prófar að skilja dönskuna og heldur sig við hana þá kemst maður alveg ótrúlega langt í að skilja hana og svo getur maður meira að segja gert sig nokkuð skiljanlegan með einfalda hluti, á það þó til að rugla frönskum, enskum og íslenskum orðum inní en það reddast nú... Merkilegt hvað framhaldsskóladanskan poppar upp á ótrúlegustu tímum 
Nú styttist í að karlinn minn komi til mín í heimsókn, það verður afar ljúft.
Nu skal jeg gå i Malmö og svo er best að vera duglegur að læra svo maður geti gefið sér nokkra daga frí með flotta karlinum sínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góðsemi Dana
9.7.2010 | 22:38
Eftir að hafa búið í tæpar 2 vikur í Danmörku er ég búin upplifa það að Danir er alveg einstaklega vingjanlegir. Ég bý hjá frænku mannsins míns og manni hennar (sem eru alveg einstaklega góð við mig) og vinkona þeirra kom í heimsókn einn daginn og upp úr þurru bauð hún mér bílinn sinn að láni í 2 vikur þar sem hún er að fara til Íslands með gestgjöfum mínum. Ég er svo einnig búin að fá 2 hjól að láni hjá góðum dönum.
Í annað af tveimur skiptum sem ég villtist hér í Dragör, ég ratvísa manneskjan sem hef venjulega stjórn á öllum kortum og að rata á mínu heimili, þá spurðist ég tvisvar til vegar í bæði skiptin við heimili hjóna, í annað skiptið hafði konan fyrir því að fara inn til sín, finna kort og fara vel og vandlega yfir það hvert ég ætti að fara. Þrátt fyrir góðan vilja náði ég þó að villast aftur og stoppaði þá aftur við heimili hjóna sem voru að vinna í garðinum hjá sér, í það skiptið gekk konan með mér alla vega tvær götur til að sýna mér nákvæmlega hvert ég ætti að fara (kannski ég hafi verið orðin svona villt í framan að henni hafi ekkert litist á mig....). Alla vega þá finnst mér alveg vert að minnast á hversu þeir Danir sem ég hef kynnst vilja allt fyrir mann gera þrátt fyrir að þekkja mann ekki neitt.
Vika tvö hefur farið lærdóm og ritgerðarsmíðar, meiri hjólreiðar en eitthvað lítið um hlaup þar sem ég er venjulega búin eftir hjólreiðatúr dagsins....ég get ekki sagt að ég sé vön að hreyfa mig svona mikið á hverjum degi, þ.e. að lágmarki 14 km eða 1 klst. af hjólreiðum á dag og yfirleitt meira.. Ég er einnig búin að ná að hjóla á biluðu hjóli og þurfa að fara með það í viðgerð (sem er reynsla út af fyrir sig þegar viðkomandi skilur lítið í ensku og ég ekki mikið talandi í dönsku....).
Ég er búin að prófa að sóla mig á danskri strönd sem er bara nokkuð ljúft
. Búin að "túristast" smá og núna síðast að skauta á línuskautum 20 km um götur Kaupmannahafnar sem var bara nokkuð gaman og merkilegt nokk þá komst ég heil út úr því miðað við að hafa ekki stigið á línuskauta í nokkuð langan tíma... Spurning um að setja sér markmið að fara á línuskautum um helstu borgir heims, búin að taka París, Reykjavík og Köben þá á ég bara hinar eftir
.
Já svo er ég búin að smakka danska pulsu (eða er það kannski pylsa...), sem ég hafði ekki gert áður þrátt fyrir að hafa komið hingað nokkrum sinnum áður... og ég verð að segja að hún er bara nokkuð góð.
Ég verð að segja að ég er í smá sjokki með verðlagið hérna fyrir lítinn íslending eins og mig, ég bjóst alveg við að það væri nú ekkert ódýrt að lifa hérna en vá..... ég er meira að segja búin að kanna þetta í Nettó sem á að vera með Bónus verð og við erum að tala um að eins og hálfslíter kók kostar fjögurhundruð og eitthvað íslenskar.....sem að mig minnir er á rúmlega 200kr. heima. Hér finnur maður virkilega fyrir máttleysi íslensku krónunnar.
Það verður spennandi að sjá hvað þriðja vikan býður uppá....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjólreiðar í Danmörku
6.7.2010 | 10:06
Hjóli, hjóli, hjóli....
Þegar talað er um hjólreiðamenningu þá verð ég nú að viðurkenna að ekki vissi ég hvað fælist nákvæmlega í þeim orðum fyrr en ég kom hingað til Kaupmannahafnar og byrjaði að taka þátt í þessari menningu. Það að stíga á hjól í Danmörku er nánast það sama og að stíga uppí bíl því þú verður að haga þér nákvæmlega eins og bílarnir annars getur þú fengið 500 DKR sekt...
Þetta þýðir að þú þarft að lyfta upp krepptum hnefanum (eins og að rétta upp hendina í skólanum bara aðeins beygða) þegar þú ætlar að stoppa og svo er það hægri eða vinstri hendin út þegar þú þarft að beygja. Það er bannað að hjóla annarsstaðar en á merktum hjólreiðastígum og ef þú ferð uppá gangstétt eða ætlar yfir torg þá skalt þú stíga af hjólinu og ganga með það. Hjólreiðamenn eru nánast allaf í rétti þannig að það er eins gott að passa sig á þeim þegar maður ætlar út úr strætó eða ganga yfir götu..
Ég var það heppin að fá leiðbeiningar frá vinkonu hérna úti en hvergi getur maður séð þessar reglur þegar maður stígur uppá hjólið sitt... það er eins gott að vita hvað felst í orðinu hjólreiðamenning!
Annars er ég alveg búin að sjá Skagann fyrir mér sem ekta bæ fyrir hjólreiðamenningu þar sem auðvelt er að komast leiðar sinnar á hjólum og ekki ber mikið á brekkum þar frekar en hér í Danmörku. Þetta er eitthvað sem vert er að skoða...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsta vikan í Kaupmannahöfn
4.7.2010 | 19:17
Fyrsta vikan mín hefur verið ótrúlega fljót að líða og hef ég notið hennar afskaplega vel. Ég hef nýtt meginhluta hennar í lærdóm fyrir námskeiðin tvö sem ég er í, byrjað á ritgerðinni minni, skoðað borgina, hjólað heilan helling um borgina og Dragör, hitt fullt af fólki bæði íslendinga og útlendinga, lesið og náð að taka fyrstu vikuna í nýja hlaupaprógramminu mínu :-)
Ég er núna að nema International Leadership og Communication Strategies for Managers í sumarskóla við Copenhagen Business School, sem hluta af meistaranáminu mínu í Háskólanum í Reykjavík. Ég er mjög ánægð með þessa kúrsa og kennarana í þeim, annar kemur frá Cambridge og hinn frá University of Southern California.
Ég verð að segja að það er afskaplega þægilegt að vera bara í skóla og geta einbeitt sér aðeins að því þó svo að ég sakni að sjálfsögðu fjölskyldu minnar heima. Þar kemur Skype þó sterkt inn og hef ég náð að tala við þau daglega og eru þau mjög dugleg að komast af án mín, ótrúlegt en satt :-) En æðislegt verður þó gaman að koma heim og knúsa þau :-)
Það hafa allir verið yndislegir við mig og er ég mjög ánægð með þessa danska menningu þar sem flestallir njóta lífsins, eru duglegir að hitta vini sína og gefa af sér.
Mig langar að ljúka þessu í dag með flottum orðum sem Nelson Mandela lét falla, en þau segja okkur að við getum alltaf gert betur í hverju sem við tökum okkur fyrir hendur:
"We attend to limit ourselves and settle for less that we could achieve. „Our deepest fear is not that we are inadequate. Our deepest fear is that we are powerful beyond measure. It is our light, not our darkness that frightens us“." (Nelson Mandela)
Lífið er yndislegt !

Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



